Beiðni um úrskurð forseta

Önnur mál nefndarfundar (2204181)
Efnahags- og viðskiptanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
26.04.2022 40. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Beiðni um úrskurð forseta
Í samræmi við 5. mgr. 8. gr. laga um þingsköp Alþingis ákvað nefndin að óska eftir því að forseti Alþingis úrskurði um skilning eða framkvæmd starfsreglna fastanefnda. Það álitaefni sem nefndin ákvað að óska úrskurðar um er hvort ákvæði X. kafla starfsreglna fastanefnda Alþingis verði skýrð á þann hátt að minni hluti nefndar geti óskað eftir, að auk þess ráðherra sem fer með yfirstjórn þess málefnis sem til umfjöllunar er, verði einnig boðaðir aðrir tilgreindir ráðherrar.